1. Price in open competition.
Byggingin verður um 1.500 fermetrar að stærð og þar verða 20 rými sem mynda 3 heimili aldraðra sem þurfa umönnun og hjúkrun. Hönnun er grundvölluð á stefnu stjórnvalda um nútímalegt skipulag hjúkrunarheimila og einnig eru kröfur um vistvæna vottun samkvæmt BREEAM (alþjóðlegu vottunarkerfi) sem tekur til allra sem koma að framkvæmdunum.
Iceland spar (Silfurberg) , formerly known as Iceland crystal, is a transparent variety of calcite, or crystallized calcium carbonate, originally brought from Iceland, and used in demonstrating the polarization of light.
One of the well-known places where “Silfurberg” came from is the “Helgustadanám”, close to Eskifirdi. The story and the impact of this place are nearly been forgotten. We hope to reopen the interest for this peace of “history of science” by establishing a “Silfurberg” font.
“Gott er að prýða hærur með æru”, segir máltæki eitt. “Mannorð fylgir manni til dyra”, segir annað. “Hart er að verða að híma undir vegg og hafa verið gæðingurinn besti”, kveður Davíð Stefánsson. Á nýju hjúkrunarheimili í Fjarðarbyggð er lögð áhersla á að heimilið sé aðlaðandi fyrir heimilisfólk, starfsfólk og aðstandendur, að heimilið laði að og að öllum líði þar vel, að þar ríki virðing, reisn og gleði. Eskifjörður var mikll verslunarstaður fyrr á öldum. Sjávarútvegur og fiskvinnsla hefur um langa hríð verið þar aðalatvinnuvegurinn. Fyrstu hús bæjarins voru tjörguð timburhús eins og gamla verslunarhúsið sem nú hýsir sjóminjasafnið. Rétt við Eskifjörð, í hlaði byggðarinnar, er merk náma, silfurbergsnáman á Helgustöðum. Því er haldið fram að hefði þessarar merku steintegundar ekki notið við hefðu margar grundvallaruppgötvanir nítjándu og tuttugustu aldarinnar tafist um marga áratugi og samtími okkar væri því annar. Á sama hátt hafa íbúar hjúkrunarheimilisins á Eskifirði verið skapandi mótendur samfélagsins í Fjarðabyggð, kristallar sem með eiginleikum sínum hafa lagt grunninn að byggðinni eins og hún er nú. Sumir telja silfurbergið búa yfir orku. Það er sagt auka styrk og aðlögunarhæfni, tilfinningalegt jafnvægi, glaðværð, léttleika og draga úr ótta og streitu.